Ákveðið hefur verið af mótstjórn að mótið hefjist kl.09:30. Athugið að allir rástímar færast um sem nemur tveim klukkustundum.
|
|
|
Stigamót unglinga frestun |
|
Vegna veðurs er stigamót unglinga frestað um tvær klukkustundir eða til 09:30.
|
|
|
Lokun vegna stigamóts unglnga |
|
Ágætu félagar
Þessa helgi fer fram stigamót unglinga á vegum GSÍ á Golfvelli Keilis. Golfvöllur Keilis verður að þeim sökum lokaður laugardaginn 4.september og sunnudaginn 5.september til kl.17:30. Við bendum félagsmönnum í Golfklúbbnum Keili á að þeir geta spilað alla
aðra golfvelli gegn 50% afslætti af vallargjaldi. Auk þeirra er
Sveinskotsvöllurinn ( 9 holu völlurinn ) opinn.
Við minnum félagsmenn á vinavelli Keilis.
Vinavellir Golfklúbbsins Keilis eru.
- Golfklúbburinn Hellu, sími 487-8208
- Golfklúbburinn Suðurnesja, sími 421-4100
- Golfklúbburinn Vatnsleysu, sími 424-6529
- Golfklúbburinn Geysir í Haukadal, sími 893-8733
- Golfklúbburinn Hamar í Borgarnesi, sími 437-2000
|
|
|
Hlynur Geir stigameistari karla |
|
Hlynur Geir Hjartarson Golfklúbbnum Keili varð stigameistari GSÍ 2010 með 6131. stig 497 stigum betir en næsti maður Sigmundur Másson GKG,glæsilegt hjá Hlyni. Signý Arnórsdóttir Golfklúbbnum Keili varð í þriðja sæti á stigalista kvenna með 4382 stig.
Lokastaða
efstu kylfinga á stigalista karla:
1 Hlynur Geir Hjartarson GK 6131.88
2 Sigmundur Einar Másson GKG 5634.38
3 Kristján Þór Einarsson GKJ 4905.00
Lokastaða efstu kylfinga á stigalista kvenna:
1 Valdís Þóra Jónsdóttir GL 7282.50
2 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 5885.00
3 Signý Arnórsdóttir GK 4382.50
4 Tinna Jóhannsdóttir GK 4362.50
|
|
|
Um helgina 28. ágúst verður árleg firmakeppni Keilis haldin, glæsilegir vinningar eru í boði, við viljum beina því til félagsmanna að þeir taki þátt í söfnun fyrirtækja með því að bjóða atvinnurekendum sínum þátttöku í keppninni.
Smella hér til að sjá auglýsingu.
|
|
|
Staðan í sveitakeppnum GSÍ 2010 |
|
Hér að neðan má sjá stöðu eftir að níu holur hafa verið leiknar í dag sunnudaginn 15.ágúst.
Fara þarf úrslit og þar í fimmtu umferð.
Smella hér til að sjá stöðu og liðskipan í sveitakeppni GSÍ
|
|
|
Lokun vegna sveitakeppni GSÍ |
|
Ágætu félagar
Þessa helgi fer fram sveitakeppni í 1.deild karla á Golfvelli Keilis.
Golfvöllur Keilis verður að þeim sökum lokaður föstudaginn 13.ágúst og
laugardaginn 14.ágúst til kl. 19:00.
Sunnudaginn 15.ágúst er lokað til kl. 15:00.
Við bendum félagsmönnum í Golfklúbbnum Keili á að þeir geta spilað alla
aðra golfvelli gegn 50% afslætti af vallargjaldi.
Við hvetjum alla kylfinga til þess að
mæta á svæðið og fylgjast með fremstu kylfingum landsins keppa.
|
|
|
Guðrún Brá stimplar sig inn |
|
Um nýliðna helgi fór fram Íslandsmót í holukeppni hjá
Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Golfklúbburinn Keilir átti þar 9 keppendur af
þeim 47 sem þáttökurétt höfðu. Í karlaflokki komst lengst Hlynur Geir
Hjartarson sem tapaði í 8 manna úrslitum fyrir nýbökuðum tvöföldum
íslandsmeistara Birgi Leif Hafþórssyni.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir gerði þó enn betur og endaði í
þriðja sæti eftir leik við Ragnhildi Sigurðardóttir.
Við óskum Guðrúnu til hamningju með árangurinn sem sýnir að
hún er komin í hóp bestu kvenkylfinga landsins, aðeins 16 ára gömul.
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 8 af 220 |