Kvennastarf
Haustferð Keiliskvenna

Haustferð Keiliskvenna verður helgina 28. – 29. ágúst.

Farið verður að Hellishólum að morgni þess 28. ágúst, mót verður eftir hádegið, við ráðgerum að byrja að ræsa út um kl. 12:00. Eftir mótið verður matur og verðlaunaafhending.  Við þurfum að koma okkur sjálfar á staðinn.

 Verð er kr. 14.000.- , innifalið í verði er golfmót, tvírétta kvöldmatur, gisting og morgunmatur.  

Skráning er á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

 Við skráningu er óskað eftir að greitt sé staðfestingagjald kr. 3000.- á reikning :  1101-26-500952    kt. 100249-7319. Staðfestingargjald er óafturkræft.

 

Kvennanefnd Keilis

 

 
Vinkvennamót GK og GO úrslit

Lesa meira...
 
Vinkvennamót GK og GO

Þann 14. og 19. júlí verða vinkvennamót hjá GK og GO. Um er að ræða tveggja daga keppni milli golfklúbbanna.  Sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi. Veittar verða viðurkenningar til þriggja kvenna sem verða með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga og þá fær sú kona viðurkenningu sem verður með lægsta samanlagða skorið báða dagana.   Nándarverðlaun eru á fjórum par 3 holum og einnig verðlaun fyrir lengsta teighögg á einni braut.

Miðvikudaginn 14. júlí heimsækja GO konur GK konur á Hvaleyrarvöll.  Spilaðar verða 18 holur og er vallargjaldið kr. 2.500 fyrir GO konur. Rástímar frá 13:00 - 15:00. Opnað verður fyrir rástímaskráningu mánudaginn 5. júlí. Mánudaginn 19. júlí heimsækja GK konur GO konur á Urriðvöll. Spilaðar verða 18 holur og er vallargjaldið kr. 2.500 fyrir GK konur. Rástímar frá 13:00 - 15:00. Opnað verður fyrir rástímaskráningu mánudaginn 12. júlí.

Mælst er til þess að saman leiki í holli tvær konur frá GO og tvær konur frá GK.  Í mótslok 19. júlí nk. verða afhentar viðurkenningar.

Enn eru örfáir rástímar lausir í mótið á Keilisvellinum 14. júlí.

 
Keiliskonur vetrarstarfið 2010

Gleðilegt nýtt ár Keiliskonur nú er vetrarstarfið að hefjast.

Smellið hér til að sjá dagskrá.

 
Advertisement
Advertisement
Advertisement

Póstlisti