| Æfingasvæði Keilis Hraunkot |
|
Keilir hefur yfir að ráða nýju og glæsilegu æfingasvæði af fullkomnustu gerð. Æfingaaðstaðan er staðsett þar sem áður var Sædýrasafn Hafnarfjarðar. Aðstaðan er eins og best verður á kosið, glæsileg inniaðstaða með 18 holu púttvelli. Þar er einnig aðstaða til að æfa stutt nákvæmishögg. Á efri hæð Hraunkots er mjög góð aðstaða til fundarhalda og rúmgóð kaffiaðstaða. Á svæðinu er nýtt æfingaskýli með 20 básum til að slá út úr, tveir básar eru til viðbótar sem eingöngu verða notaðir fyrir sérkennslu. Þar eru til staða upptökutæki af nýjust gerð sem kennara Keilis nota við golfkennsluna. Á æfingasvæðinu er 350 m2 púttflöt og mjög góð aðstaða til að æfa stutta spilið. Kylfingar geta slegið þarna allt að 100 metra löng högg inn á flöt. Sandglompur eru til staðar svo kylfingar geta nú æft á sama staðnum stutta spilið og lengri golfhögg.
Sumar - opnunartími Hraunkots 2009: Æfingaskýlin eru opin frá kl.08:00 en afgreiðslan og inniaðstaðan er opin samkvæmt eftirfarandi upplýsingum.
Mánudaga til fimmtudags 09:00-22:00 Þegar mót eru er opnað klukkutíma fyrir 1. Rástíma.
Vetraropnunartími Hraunkots 2009 - 2010: Æfingaskýlin eru opin frá kl.10:00 en afgreiðslan og inniaðstaðan er opin samkvæmt eftirfarandi upplýsingum.
Mánudaga til fimmtudags 12:00-22:00
Bókaðir tímar í sal veturinn 2010 smellið hér
Minnum á ef kylfingar eru ekki með boltakort í Hraunkot, þá má nota
allar myntir og seðla til að kaupa bolta í boltavélunum. Einnig er hægt
að versla token í golfskála Keilis. Netfang Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það Síminn í Hraunkoti er 565-3361 Á mótsdögum verður opnað 1 klukkustund fyrir fyrsta rástíma.
Verð á æfingaboltum
Afsláttarkort kostar 9.000, þú færð 212 bolta fría kostar 4.500 krónur, þú færð 53 bolta fría kostar 2.800 krónur,þú færð 17 bolta fría Boltakortin eru til sölu í afgreiðslu Hraunkots. Einnig er hægt að nota 100 krónu mynt.
|
































