Aðalvöllur
Karlar 21 árs og eldri 73.000 kr.
Konur 21 árs og eldri 73.000 kr.
Unglingar 13-20 ára 38.000 kr.
Unglingar 12 ára og yngri 31.500 kr.
Ellilífeyrisþegar 67+ 49.000 kr.
Inntökugjald* 34.000 kr.
Sveinskotsvöllur ( 9 holu völlurinn )
Karlar 21 árs og eldri....................55.000 kr.
Konur 21 árs og eldri....................55.000 kr.
Unglingar 13-20 ára.....................38.000 kr.
Unglingar 12 ára og yngri..............31.500 kr.
Ellilífeyrisþegar 67+.....................49.000 kr.
Inntökugjald*............................34.000 kr.
*Nýjir félagar sem ganga í Golfklúbbinn Keili greiða inntökugjald. Inntökugjaldið verður 34.000 nema í flokki 17 ára og yngri, þar er ekkert inntökugjald.
Nýliðar
Nýliðar sem ekki eru komnir með forgjöf þurfa að fara á námskeið þar sem kenndar eru helstu umgengnisreglur og farið yfir undirstöðuatriðin í golfleiknum. Námskeiðið er innifalið í inntökugjaldinu.
Systkinaafsláttur
Hann virkar þannig að fyrsta barn greiðir fullt gjald, síðan er 5.000 kr afsláttur fyrir hvert barn eftir það. Afslátturinn er veittur fyrir börn yngri en 17 ára.Foreldrar sem eiga fleiri en eitt barn í félaginu á þessu aldri eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu Keilis sem fyrst til auðvelda afgreiðslu félagsgjalda fyrir viðkomandi.
Félagsgjöld fyrir árið 2010
Vinsamlegast athugið að gerð hefur verið sú breyting á innheimtu félagsagjalda að í ár verða sendir út þrír greiðsluseðlar til þeirra sem kjósa þann greiðslumáta. Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í gegnum banka.
Skápaleiga og aðstaða fyrir hjól
Ákveðið er að leiga fyrir skápana verði nú innheimt árlega um leið og félagsgjöldin, ársleiga verður nú kr. 7.000. Þeir sem eru með hjólin sín í ræsishúsinu greiða nú afnotagjald fyrir aðstöðuna, gjaldið er kr. 10.000 og innheimtist á sama máta.
Boðið er upp á að greiða með kreditkortum, staðgreiðslu eða tveim greiðsluseðlum.
Þeir félagar sem greiða með greiðslukorti, VISA eða EURO geta dreift greiðslum í 10 jafna hluta frá og með 1.febrúar. Aðeins 3% þóknun er af kortaviðskiptunum.
Þeir sem ekki greiða með korti munu fá senda þrjá greiðsluseðla með gjalddögum 1. janúar,1. febrúar, og 1. mars, eindagar á greiðsluseðlunum verður 15. janúar,15 febrúar og 15. mars 2010. Gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350,00.
Þeir sem ekki hafa greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 15. apríl verða teknir út af félagaskrá og aðrir teknir inn í þeirra stað. Eftir 15. apríl verður innborgað félagagjald ekki endurgreitt nema í sérstökum óviðráðanlegum tilfellum.
Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að það sé gert strax eftir áramót. Það eina sem þú þarft að gera til að ganga frá greiðslufyrirkomulagi sem hentar þér er að hringja á skrifstofu Keilis í síma 565-3360 og ræða við Guðbjörgu um breytingar.
Vallargjöld 2010 - Aðalvöllur
Kylfingar utan GSÍ greiða Kr. 6.500 í vallargjald á 18 holu golfvöllinn.
Kylfingar innan GSÍ 18 holu golfvöllur.
- eftir kl. 13:00 og um helgar ............kr. 5.500
- fyrir kl. 13:00 virka daga ................kr. 4.000
- Unglingar 16 ára og yngri greiða Kr.3000. til kl 13:00 virka daga á 18 holu golfvöllinn, eftir það fullt gjald.
- Eldri borgarar greiði Kr.3000. til kl 13:00 virka daga á 18 holu golfvöllinn, eftir það fullt gjald.
Vallargjald 2010 - Sveinskotsvöllur
- Kr. 2500.
- Unglingar 16 ára og yngri greiði kr. 1200.
- Eldri borgarar greiði Kr.1200. til kl 13:00 virka daga eftir það fullt gjald.
Golfbílaleiga.................kr. 4.000
Golfsettaleiga..............kr. 2.000
Golfkerruleiga..............Kr. 500
Gestir félagsmanna
Félagsmenn í Keili geta nú tekið með sér tvo gesti fyrir kl.13:00 alla virka daga, greiða gestirnir þá lægra vallargjald.
- kr. 3.000 í hvert skipti á 18 holu völlinn
- kr. 1.200 í hvert skipti á Sveinkotsvöll.
Hámarksfjöldi gesta eru 2 í hvert skipti.
Gestir á 18 holu golfvöllinn þurfa að uppfylla skilyrði um aðild að G.S.Í
Vinavellir
Gert hefur verið samkomulag við :
- Golfklúbb Hellu
- Golfklúbbinn á Vatnsleysuströnd
- Golfklúbbur Suðurnesja ( Leiran )
- Golfklúbbinn í Borganesi
- Golfklúbbinn Geysi, Haukadal
Samkomulagið tekur gildi frá og með 1.maí 2010 til 30. sept. 2010. Félagsmenn Golfklúbbsins Keilis greiða krónur 1000 í vallargjald í hvert sinn er þeir leika golfvellina og skiptir ekki máli hvort leiknar séu 9 eða 18.holur. Vallargjaldið greiðist í afgreiðslu viðkomandi golfklúbbs.
Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum, sem gert hafa sérstaka samninga um afsætti af vallargjöldu, eins og t.d fyrirtækjamót.Þetta
samkomulag gildir aðeins gegn framvísun félagsskírteinis fyrir árið 2010.
Athugið að panta rástíma.
|