| Staðan í puttmótum kvenna |
|
Nú hafa verið haldin 5 púttmót hjá Keiliskonum í vetur en alls verða mótin 10. Fjögur bestu mótin telja síðan til verðlauna sem púttmeistari Keiliskvenna 2010. Mætingin hefur verið nokkuð góð í vetur, það hafa komið frá 36 - 60 konur á kvöldi. Síðasta miðvikudag mættu 36 konur í 5. púttmótið. Besta skorið var hjá Ólöfu Baldursd og Ingu Magg en þær voru með 29 pútt, síðan kom Halla Sigurgeirsd. með 30 pútt og Elfa Guðmundsdóttir og Telma Árnadóttir með 31pútt. Þegar bestu 4 hringirnir eru lagðir saman eru þessar konur efstar.
Guðrún
Einarsdóttir 118
Næsta
miðvikudag er öskudagur og þá væri gaman ef konur kæmu klæddar í samræmi við
daginn. Eftir púttmótið verður kaffi og meðlæti í boði kvennastarfsins uppi í
Hraunkoti.Við
í kvennanefndinni vonum að sem flestar konur komi á púttmótin og við
viljum sérstaklega hvetja þær sem eru nýjar í Keili að koma og vera með okkur
því þetta er kjörinn vettvangur til að kynnast öðrum konum í klúbbnum.
|
































