Öskudagmót Keiliskvenna.

6. púttmót Keiliskvenna var á miðvikudagkvöldið  þ.e. á  öskudag og mættu 46 konur til leiks. Það var létt yfir konunum þetta kvöld og margar þeirra klæddar í einhver furðuföt að hætti dagsins. Eftir púttið voru síðan veitingar í boði kvennastarfsins. 

Úrslitin í 6. mótinu voru þau að Sveindís Sveinsdóttir var á 30 höggum, Guðrún Einarsd. 32 höggum, Þórdís Geirsd. 32 höggum, Ólöf Baldursd. 33 höggum og Sigrún Hauksd. á 33. höggum.

Staðan þegara 4 bestu mótin telja er sú að Guðrún Einarsd. er í 1. sæti á 118 höggum, Þórdís Geirsdóttir í 2. sæti á 121 höggi og Ólöf Baldursdóttir í 3. sæti á 127 höggum.

kvennanefnd Keilis

 

 
Advertisement
Advertisement
Advertisement

Póstlisti