Golfreglukvöld fyrir Keilis félaga.

 

Reglukvöld fyrir Keilisfélaga.

Í mars ætlar Golfklúbburinn Keilir að bjóða upp á fræðslu um golfreglur fyrir meðlimi sína. Haldin verða tvö námskeið,
það fyrra verður 8. mars og er ætlað fyrir konur í klúbbnum.
Það seinna verður 16. mars og er almennt námskeið fyrir meðlimi Keilis.

Námskeiðin verða haldin í Hraunkoti, sal á efri hæð og hefjast kl. 20:00 bæði kvöldin.
Kennarar eru golfdómararnir Hörður Geirsson og Hilmar Guðjónsson
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á þessi námskeið og undirbúa sig þannig fyrir sumarið.

  16. mars kl. 20:00 – Almennt námskeið

Dagskrá.

  1. Leikhraði, siðareglur, umgengni. Hvernig getum við gert golfleikinn ánægjulegri fyrir alla?
  2. Uppbygging golfreglnanna og grundvallaratriði.
  3. Nánari útlistun á reglum sem oft þarf að nota.
  4. Hvaleyrarvöllur og golfreglurnar. Staðarreglur, vallarmörk o.fl.
  5. Umræður.

  6. Umsögn kvenna eftir reglukvöldið sem haldið var 8.mars.

    Kennararnir Hörður Geirsson og Hilmar Guðjónsson fóru yfir helstu reglur sem vefjast oft fyrir okkur golfurum.  Það var samdóma álit kvennanna sem þátt tóku í námskeiðinu að það hefði verið gagnlegt og  kennslan mjög góð.  Annað reglukvöld verður haldið á þriðjudaginn 16. mars og eru félagsmenn hvattir til að skrá sig á námskeiðið. Skráning er í Hraunkoti sími 565- 3361 eða með tölvupósti Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Advertisement
Advertisement
Advertisement

Póstlisti