Markmið skólans er að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf

  • farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
  • leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli
  • kennsla er gjarnan í formi þrauta og golfleikja
  • áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir krökkunum

Með að taka þátt í golfleikjanámskeiðum verður viðkomandi með aukaaðild að Golfklúbbnum keili. Innifalið í gjaldi er aðgangur að Sveinkostvelli í sumar.

Ef viðkomandi hefur áhuga á því að æfa golf hjá Keili þá eru hópaæfingar samkvæmt æfingaskipulagi á Sportabler.

Umsjón með golfæfingum og golfskólanum hefur Birgir Björn Magnússon íþróttastjóri Keilis og veitir hann allar nánari upplýsingar á netfangið birgir@keilir.is

Skráning hefst 1. maí