Gjaldskrá 2023

Árgjöld

Hvaleyravöllur

Hópur 0 – 18 ára            35.475 kr. (25% af fullu gjaldi)
Hópur 19-26 ára             70.950 kr. (50% af fullu gjaldi)
Hópur 27-70 ára             141.900 kr. (fullt gjald)
Hópur 71-74 ára             106.425 kr. (75% af fullu gjaldi)
Hópur 75 ára og eldri     70.950 kr. (50% af fullu gjaldi)

Sveinskotsvöllur (9 holu völlurinn)

Hópur 0 – 16 ára            0 kr.
Hópur 17-26 ára             35.475 kr. (50% af fullu gjaldi)
Hópur 27-70 ára             70.950 kr. (fullt gjald)
Hópur 71-74 ára             53.213 kr. (75% af fullu gjaldi)
Hópur 75 ára og eldri     35.475 kr. (50% af fullu gjaldi)

Vallargjöld

Hvaleyrarvöllur

Hvaleyrarvöllur er 18 holur, par 71.

Kylfingar innan GSÍ
virka daga og um helgar: 9.000 kr.
– Unglingar, 16 ára og yngri, ásamt eldri borgurum greiða 6.000 kr fyrir kl 13:00 virka daga, annars fullt gjald.

Kylfingar utan GSÍ
Vallargjald 14.200 kr.

Gestir félagsmanna
Félagsmenn í Keili geta tekið með sér tvo gesti fyrir kl 13:00 alla virka daga og greiða gestirnir þá lægra vallargjald, kr. 6.000 í stað 9.000.

Sveinskotsvöllur

Sveinskotsvöllur er 9 holur, par 31.

Vallargjald er 4.000 kr.
– Unglingar, 16 ára og yngri, greiða 2.500 kr. Frítt í fylgd með foreldrum/fullorðnum
– Eldri borgarar greiða 2.500 kr virka daga fyrir kl 13:00. Eftir það fullt gjald.

Gestir félagsmanna
Félagsmenn í Keili geta tekið með sér tvo gesti fyrir kl 13:00 alla virka daga og greiða gestirnir þá lægra vallargjald, kr. 3.000 í stað 4.000.

Aðrar upplýsingar

Nýliðar
Nýliðar sem ekki eru komnir með forgjöf þurfa að fara á námskeið þar sem kenndar eru helstu umgengnisreglur og farið yfir undirstöðuatriðin í golfleiknum. Námskeiðið er innifalið í inntökugjaldinu.

Félagsgjöld fyrir árið 2023
Sendir eru út fjórir greiðsluseðlar til þeirra sem kjósa þann greiðslumáta. Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í gegnum banka.

Skápaleiga og aðstaða fyrir hjól
Leiga fyrir skápana er innheimt árlega um leið og félagsgjöldin og er ársleigan 18.500 kr. Hér er hægt að skrá sig á biðlista eftir skáp. Þeir sem eru með hjólin sín í ræsishúsinu greiða nú afnotagjald fyrir aðstöðuna. Gjaldið er kr. 23.000 og innheimtist á sama máta.
Boðið er upp á að greiða með kreditkorti, staðgreiðslu eða  greiðsluseðlum.

Þeir félagar sem greiða með kreditkorti geta dreift greiðslum í 10 jafna hluta frá og með 1.janúar. Þrjú prósent þóknun er af greiðsludreifingu.

Þeir sem ekki greiða með korti munu fá senda fjóra greiðsluseðla með eindaga  1. febrúar og 1. mars, 1. apríl og 1. maí . Gjald per greiðsluseðil er kr. 350 kr.

Þeir sem ekki hafa greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 15. maí verða teknir út af félagaskrá og aðrir teknir inn í þeirra stað. Eftir 15. maí verður innborgað félagagjald ekki endurgreitt nema í sérstökum óviðráðanlegum tilfellum.

Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að það sé gert strax eftir áramót. Það eina sem þú þarft að gera til að ganga frá greiðslufyrirkomulagi sem hentar þér er að hringja á skrifstofu Keilis í síma 565-3360 og ræða við Davíð um breytingar, eða senda honum póst á david@keilir.is.