Golfskóli Keilis sumarið 2024

Golfskóli Keilis er fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 5 – 12 ára frá kl. 9:00 til 12:00

Markmið skólans er að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf

  • farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
  • leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli
  • kennsla er gjarnan í formi þrauta og golfleikja
  • áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir krökkunum

Golfskóli Keilis er á morgnana kl. 9:00-12:00

Hámark eru 36 nemendur í hverjum skóla

*Allir eiga að mæta með hollt og gott nesti.

Með að taka þátt í golfleikjanámskeiðum verður viðkomandi með aukaaðild að Golfklúbbnum keili. Innifalið í gjaldi er aðgangur að Sveinkostvelli í sumar.

Ef viðkomandi  hefur áhuga á því að æfa golf hjá Keili þá eru hópaæfingar samkvæmt æfingaskipulagi á Sportabler.

Umsjón með golfæfingum og golfskólanum hefur Karl Ómar Karlsson íþróttastjóri Keilis og veitir hann allar nánari upplýsingar á netfangið Kalli@keilir.is

Skráning hefst 1. maí 2024.

SKRÁNING í GOLFSKÓLA KEILIS 2024. Opnar 1. maí