27/03/2012

Braut 7 – Grænaskjól

Braut 7 – Grænaskjól

Mikið landslag er í þessari braut og gríðarlega stór dalur er í grennd við lendingarsvæði flestra teighögga oft nefndur „dauðadalurinn“. Brautin liggur í hundslöpp til hægri en innkoman á flötina er í nokkurs konar vinkil til vinstri. Brautin er mjög breið þar sem teighöggin lenda en ef vel á vera þarf annað höggið að fljúga yfir hraunið og lenda þvert á nokkuð þrönga brautina eða inn á flötina. Þessa glæsilegu stóru flöt er þó nauðsynlegt að nálgast með gát því hraunið er skammt utan hennar.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2019
    Lokun á umferð golfbíla.
  • 13/07/2017
    Þrjár nýjar holur opnaðar
  • 29/03/2012
    Braut 17 – Flókabraut
  • 29/03/2012
    Braut 18 – Sælakot
  • 29/03/2012
    Braut 15 – Fúla
  • 29/03/2012
    Braut 16 – Drundur