Félagsgjöld 2026

Hvaleyrarvöllur

Sveinskotsvöllur

Aðrar upplýsingar

Nýliðar
Nýliðar sem ekki eru komnir með forgjöf þurfa að fara á námskeið þar sem kenndar eru helstu umgengnisreglur og farið yfir undirstöðuatriðin í golfleiknum. Námskeiðið er innifalið í inntökugjaldinu.

Félagsgjöld fyrir árið 2026
Boðið er upp á að greiða félagsgjöldin með kreditkorti, staðgreiðslu eða greiðsluseðlum.

Þeir félagar sem greiða með kreditkorti geta dreift greiðslum í allt að 10 jafna hluta frá og með 1.janúar. Þrjú prósent þóknun er af greiðsludreifingu.

Þeir sem ekki greiða með korti geta fengið allt að fimm greiðsluseðla í heimabanka með eindaga 1. janúar, 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí.

Athugið! að þeir sem hafa verið að dreifa árgjaldinu á fjóra eða færri greiðsluseðla verða að hafa samband við skrifstofu vilji þeir fjölga í fimm greiðsluseðla

Fyrsti greiðsluseðill mun berast í heimabanka í desember með eindaga 1. janúar.
Gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350
Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í heimabanka.

Hafi félagsmaður ekki greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 15. maí verður svo á litið að viðkomandi ætli sér ekki að vera meðlimur í sumar og þ.a.l verður hann tekinn af félagatali Keilis.

Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að gera það strax. Það eina sem þarf að gera til að ganga frá breytingu er að senda tölvupóst á netfangið david@keilir.is

Einnig viljum við benda á að ef félagsmaður ætli sér að hætta í Keili þá skal úrsögn berast sem allra fyrst. Úrsögn skal vera skrifleg og berast í tölvupósti á keilir@keilir.is

Ef félagsmaður ætlar sér að halda áfram í Keili þá þarf ekkert að gera.

Skápaleiga og aðstaða fyrir hjól
Leiga fyrir skápana er innheimt árlega um leið og félagsgjöldin og er ársleigan 23.500 kr. Hægt er að skrá sig á biðlista með að hafa samband við skrifstofu. Þeir sem eru með hjólin sín í ræsishúsinu greiða nú afnotagjald fyrir aðstöðuna. Gjaldið er kr. 30.000 og innheimtist á sama máta.