Í dag fór fram opna Golfskála og Estrella mótið en góð þátttaka var í mótið enda vinningarnir ekki af verri endanum. 170 kylfingar gerðu sér ferð á Hvaleyrina sem var upp á sitt besta í dag en ræst var út frá 7:20-14:30. Verðlaunaafhending var svo haldin í golfskála Keilis að móti loknu. Veitt voru verðlaun fyrir átta bestu sætin í punktum sem og nándarverðlaun í bæði karla- og kvennaflokki fyrir allar par 3 holur vallarins ásamt lengsta upphafshöggi á 13. braut.

Golfklúbburinn Keilir þakkar öllum fyrir skemmtilegan og ánægjulegan dag og óskar verðlaunahöfum til hamingju. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:

Punktar

1. sæti: Vikar Jónasson,GK, 40 punktar

2. sæti: Guðný María Guðmundsdóttir, GR, 36 punktar

3. sæti: Jóhann Már Sigurbjörnsson, GB, 38 punktar

4. sæti: Örvar Þór Guðmundsson, GK, 38
punktar

5. sæti: Aron Atli Bergmann, GK, 37 punktar

6. sæti: Atli Kolbeinn Atlason, GG, 37 punktar

7. sæti: Friðbergur Jón Þorsteinsson, GKG, 37 punktar

8. sæti:Friðrik Friðriksson, GKB, 37 punktar

Nándarmælingar:

4. braut: karlar– Jón Ásgeir Ríkarðsson, 1,70

4. braut: konur– Þórdís Geirsdóttir, 2,88

6. braut: karlar– Ólafur Þór Ágústsson, 0

6. braut: konur– Kristín Sigurbergsdóttir, 2,07

10. braut: karlar– Guðlaugur Þorsteinsson. 1,78

10. braut: konur-Þórdís Geirsdóttir. 2,95

16. braut: karlar– Birgir Magnússon. 2,15

16. braut: konur– Hella Willig. 5,25

Lengsta drive

13. braut: karlar– Jóhann Már Sigurbjörnsson

13. braut: konur– Bylgja Erlingsdóttir

13434847_1128602967162349_1452418500770021653_n13346589_1128603023829010_1410320883463723420_n

opna_golfskalinn