19/08/2020

Fyrirtækjakeppni Keilis 2020

Fyrirtækjakeppni Keilis 2020

Verður haldin á Hvaleyrinni laugardaginn 5. september.

 

Þetta mót er ein helsta fjáröflun klúbbsins ár hvert og við sækjum eftir styrk ykkar. Keilir útvegar fulltrúa ef þarf. 

 

Mótið á sér langa sögu og er ein helsta fjáröflunarleið okkar. Nú leitum við eftir stuðningi ykkar og þátttöku í mótinu en fyrirkomulag þess er þannig að tveir spila saman (Betri bolti) í nafni hvers fyrirtækis og getur Keilir útvegað þátttökufyrirtækjum mannskap ef þörf krefur. 

 

Mótið er sérstaklega veglegt einsog vanalega  og haldið til að standa straum af kostnaði við viðamiklar framkvæmdir á vegum Keilis síðustu ár þar sem unnið var að því að stækka og betrumbæta golfvöllinn.

 

Nánari upplýsingar um mótið má finna í auglýsingu sem fylgir fréttinni en mótsgjald er 50.000 krónur.

 

Innifalið í því er grillveisla og drykkur að móti loknu.

 

Skráning fer fram á netfanginu budin@keilir.is

 

Með von um jákvæð viðbrögð, 

Ólafur Þór Ágústsson
Framkvæmdastjóri Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 18/12/2025
    Frá aðalfundi – Viðurkenningar fyrir framfarir og árangur
  • 11/12/2025
    Innheimta félagsgjalda 2026 – Breytt fyrirkomulag greiðsluseðla
  • 10/12/2025
    Aðalfundur Keilis fór fram í gær
  • 05/12/2025
    Stjórnarkjör Aðalfundur Keilis
  • 03/12/2025
    Aðalfundur Keilis 2025
  • 21/11/2025
    Skötuveisla Keilis 2025