Uppgjör keppnistímabilsins
Uppgjör keppnistímabilsins
Þegar keppnistímabilinu lýkur er eðlilegt að líta um öxl og rifja upp árangur og framfarir sumarsins. Þátttaka var góð á öllum viðburðum og ánægjulegt að sjá bæði reynda kylfinga og þá sem voru að stíga sín fyrstu skref í keppni fyrir hönd klúbbsins.
Golfið reynir á þolinmæði og seiglu og margir stóðu frammi fyrir nýjum áskorunum í sumar. Það var því sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir lögðu hart að sér og héldu ótrauðir áfram að vinna að markmiðum sínum.
Ber þar hæst sögulegur árangur Ólivers Elís Björnssonar, sem vann Boys’ Amateur Championship, eitt sterkasta og virtasta unglingamót heims. Óliver varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að vinna mótið eftir æsispennandi úrslitaleik sem réðst á 37. holu. Sigurinn tryggði honum jafnframt sæti í The Amateur Championship og lokaúrtökumótinu fyrir The Open.
Við óskum Íslandsmeisturum okkar einnig innilega til hamingju með glæsilegan árangur:
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni
Birgir Björn Magnússon, Íslandsmeistari í holukeppni
Þórdís Geirsdóttir, Íslandsmeistari í höggleik 50 ára og eldri
Halldór Jóhannsson, Íslandsmeistari í höggleik í flokki 15–16 ára
Elva María Jónsdóttir, Íslandsmeistari í höggleik í flokki 15–16 ára
Við lok tímabilsins er ekki aðeins ástæða til að vera stolt af úrslitum og titlum, heldur einnig af góðri þátttöku, framförum kylfinganna og þeim góða anda sem einkennir starfið. Það eru þessi atriði sem leggja grunninn að áframhaldandi þróun kylfinganna okkar og árangri klúbbsins á komandi árum.







