16/08/2021

Fyrirtækjakeppni Keilis 2021

Fyrirtækjakeppni Keilis 2021

Verður haldin á Hvaleyrinni laugardaginn 4. september.

 

Þetta mót er ein helsta fjáröflun klúbbsins ár hvert og við sækjum eftir styrk ykkar. Keilir útvegar fulltrúa ef þarf. 

 

Mótið á sér langa sögu og er ein helsta fjáröflunarleið okkar. Nú leitum við eftir stuðningi ykkar og þátttöku í mótinu en fyrirkomulag þess er þannig að tveir spila saman (Betri bolti) í nafni hvers fyrirtækis og getur Keilir útvegað þátttökufyrirtækjum mannskap ef þörf krefur. 

 

Mótið er sérstaklega veglegt einsog vanalega  og haldið til að standa straum af kostnaði við viðamiklar framkvæmdir á vegum Keilis síðustu ár þar sem unnið var að því að stækka og betrumbæta golfvöllinn.

 

Mótsgjald er 55.000 krónur.

 

Innifalið í því er grillveisla og drykkur að móti loknu.

 

Skráning fer fram á netfanginu budin@keilir.is

 

Með von um jákvæð viðbrögð, 

Ólafur Þór Ágústsson
Framkvæmdastjóri Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu
  • 01/06/2026
    Uppfærðar staðarreglur
  • 31/05/2026
    Fréttir af starfshópi um nýjan golfvöll
  • 30/05/2026
    Hola í höggi á fyrsta mótshring ársins!
  • 30/05/2026
    Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman