23/04/2025

Seinkun á opnun Hvaleyrarvallar

Seinkun á opnun Hvaleyrarvallar

Veðuraðstæður síðustu daga hafa gert það að verkum að því miður náum við ekki að opna Hvaleyrarvöll á þeim tíma sem stefnt var að.

Síðustu nætur hafa verið fremur kaldar og því hægst á grasvexti.

Við erum því búin að uppfæra áætlaðar dagssetingar hvernig við munum hafa þetta:

  • Mánudagurinn 28. apríl – Sveinskotsvöllur opnar á sumarflatir og rástímaskráningar hefjast.
  • Sunnudagurinn 4. maí – Hreinsunardagur/vinnudagur (nánari upplýsingar verða auglýstar síðar).
  • Laugardagurinn 10. maí – Hreinsunarmót Keilis, einungis þeir sem tóku þátt í Hreinsunardeginum fá að taka þátt.
  • Sunnudagurinn 11. maí – Opið fyrir golfleik á Hvaleyrarvelli.

Við minnum á að allar bókanir dagana 2-10 maí munu þ.a.l. detta út.

Við vonum svo innilega að þessi áætlun standist en það er að sjálfsögðu háð veðri og vindum.

Við munum halda áfram að halda ykkur upplýstum um stöðu mála.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 11/11/2026
    Aðalfundur Keilis 2026
  • 10/11/2026
    Lokun Hvaleyrarvallar
  • 02/11/2026
    Æfingar barna- og unglingastarfsins að hefjast í Hraunkoti
  • 30/10/2026
    Hvaleyrarvöllur opnar aftur fyrir félagsmenn Keilis
  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis