26/06/2025

Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls

Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls

Opið minningarmót Guðmundar Friðriks Sigurðssonar og Kristínar Pálsdóttur er haldið sérstaklega til að halda uppi minningu þessara eðalhjóna sem störfuðu og kepptu svo ötullega fyrir Keili í gegnum árin.

Hjónin stóðu ávallt þétt að baki barna og ungmennastarfi Keilis ásamt því að bæði áttu sæti í stjórnum Keilis og GSÍ um árabil.

Golfíþróttin átti hug þeirra allan og léku þau golf um allan heim. Það er því mjög viðeigandi að allur ágóði af mótinu renni til sérstaks styrktarsjóðs sem verður tileinkaður keppni barna og unglinga erlendis.

Mótið fer fram 4. júlí n.k og er ræst út af öllum teigum samtímis klukkan 9:00

Mótsgjald er 7.500 kr.- fyrir 20 ára og eldri og 5.000 kr.-  fyrir yngri en tvítugt.

Skráning hefst 26. júní klukkan 14:00 á golfbox. Smellið hér til að skoða mótið

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 24/12/2025
    Jólakveðja frá Keili
  • 18/12/2025
    Frá aðalfundi – Viðurkenningar fyrir framfarir og árangur
  • 11/12/2025
    Innheimta félagsgjalda 2026 – Breytt fyrirkomulag greiðsluseðla
  • 10/12/2025
    Aðalfundur Keilis fór fram í gær
  • 05/12/2025
    Stjórnarkjör Aðalfundur Keilis
  • 03/12/2025
    Aðalfundur Keilis 2025