16/02/2026

Keilisferð til Fairplay

Keilisferð til Fairplay

Þá er komið að því, Golfklúbburinn Keilir ætlar að standa fyrir hópferð Keilisfélaga til Fairplay svæðisins á Spáni dagana 21-31 október n.k. Ferðin verður eingöngu í sölu fyrir Keilisfélaga og eru 50 sæti í boði. Fyrstir koma fyrstir fá!

Hægt verður að skrá sig til 5. mars og þarf að greiða 50.000 króna staðfestingargjald. Eftir þá dagsetningu fer ferðin í almenna sölu.

Við ætlum að standa fyrir keppni tveggja liða í ferðinni þar sem samanlagður árangur verður lagður saman eftir lokahring þar sem allt verður undir.

Lagt verður kapp á að hafa þetta skemmtilegt og allir njóti.

Ef næg þátttaka fæst þá verðu boðið uppá skemmtilega uppákomu í ferðinni en það veltur á þátttöku.

Koma svo spilahópar og einstaklingar, sameinumst í þessa skemmtilegu ferð.

Smellið hér til að skoða upplýsingar um ferðina

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 16/07/2026
    Hvaleyrarbikarinn 2026 – metnaðarfull upplýsingasíða
  • 14/07/2026
    Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
  • 14/07/2026
    Takk fyrir frábært Meistaramót
  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026