18/02/2026

Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

Barna- og unglingastarf Golfklúbbsins Keilis stendur fyrir kraftmikilli fjáröflun í formi happdrættissölu til styrktar æfingaferðar þeirra til Spánar í apríl nk.
Um er að ræða vikuferð á Costa Ballena / Fairplay sem er mikilvægur hluti undirbúnings þeirra fyrir komandi tímabil.
Börnin og unglingarnir hafa verið að ganga í hús um allan Hafnarfjörð og selja happdrættismiða, en þau vilja einnig bjóða félagsmönnum Keilis sérstaklega að taka þátt.
Söluandvirði happdrættismiðana sem fer í gegnum þessa auglýsingu dreifist jafnt á milli þeirra 26 krakka sem taka þátt í happdrættissölunni.
Miðinn kostar 2.500kr.
Dregið verður mánudaginn 23. febrúar.
Ferlið við kaupin eru þessi:
1. Millifæra inn á kt. 051277-3099, reikn.nr 0123-26-104336
2. Setja gsm númerið ykkar í skýringu með millifærslunni
3. Þið fáið happdrættisnúmerið sent sem SMS skilaboð
Ef það kemur vinningur á miðann þinn, þá verður þú látin vita með SMS skilaboðum
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 16/07/2026
    Hvaleyrarbikarinn 2026 – metnaðarfull upplýsingasíða
  • 14/07/2026
    Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
  • 14/07/2026
    Takk fyrir frábært Meistaramót
  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026