10/03/2026

Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili

Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili

Mótahald hjá Keili hefur tekið skemmtilegum breytingum undanfarin ár og klúbburinn leggur sífellt meiri áherslu á gæði og upplifun. Stórmótin, eins og Hvaleyrarbikarinn sem er eitt af risamótum GSÍ, halda áfram að vera stór hluti sumarsins og Keilir hefur skapað glæsilega og faglega umgjörð sem kylfingar kunna vel að meta. Sama má segja um Íslandsmótið, sem fékk mikið lof fyrir frábæra framkvæmd og framúrskarandi starf sjálfboðaliða og starfsfólks klúbbsins.

Meistaramót Keilis er svo að sjálfsögðu á sínum stað. Mótið fer fram vikuna 5.-11. Júlí þar sem má búast við að um 400 félagsmenn keppi í 30 mismunandi flokkum.

Í ár stefnum við þó á aðeins breytta nálgun. Við ætlum að fækka opnum mótum, til að skerpa mótaskrána sjálfa og leggja meiri áherslu á þau mót sem skipta mestu máli, bæði fyrir félagsmenn og gesti. Þannig verður meiri ró, betri undirbúningur og skýrari rammi utan um hvert mót. Einnig hefur myndast djúp gjá á milli vallargjalds sem verður á þessu ári 15.500 krónur og mótsgjalds hjá Keili. Á þessu verða breytingar í ár mótsgjöld til utanfélagsmanna munu hækka í lágmark 11.000 krónur en á móti ætlum við að lækka mótsgjöld til félagsmanna og verða mótsgjöld í opin mót hjá okkur í kringum 7.000 krónur.

Það er bæði til að styrkja mótahald og umbuna heimafólki fyrir þátttöku og stuðning.

Opin mót 2026:

  • Júní
  • Ágúst
  • Ágúst (opna kvennamótið)
  • September

Samhliða þessu verð aukinn fókus á fyrirtækjamót, sem hafa sýnt sig styrkja rekstur veitingasölunnar og skapa stöðugri tekjur yfir sumarið. Fyrirtækjamótin eru alltaf á virkum dögum og verður reynt að láta þau hafa sem minnst áhrif á félagsmenn, þessum mótum mun fjölga um 3 mót.

Keilir heldur áfram að þróa mótahaldið í jákvæðan átt – minna stress, meiri metnaður og betri upplifun fyrir alla kylfinga.

Kær kveðja,
Ólafur Þór Ágústsson
Framkvæmdarstjóri Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 23/04/2026
    Staðan á völlunum
  • 23/04/2026
    Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir
  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis