23/03/2026

Kynning á foreldraráði Keilis

Kynning á foreldraráði Keilis

Foreldraráð Golfklúbbsins Keilis gegnir mikilvægu hlutverki í öflugu íþróttastarfi barna og unglinga. Í ráðinu sitja sex fulltrúar ásamt íþróttastjóra og er fundað reglulega yfir árið þar sem farið er yfir æfingar, keppnisferðir og skipulag fjáröflunar.

Samvinna foreldra, þjálfara og iðkenda er lykilatriði og skiptir þátttaka foreldra miklu þegar kemur að utanumhaldi og stuðningi við börnin. Foreldrar leggja sitt af mörkum með skipulagningu og framkvæmd fjáraflana sem gera iðkendum kleift að taka þátt í metnaðarfullu starfi. Í vetur hafa fjáraflanir á borð við kúlutínslu, happdrætti og jólapúttmót verið í boði og erum við afar þakklát fyrir þann stuðning sem við fáum.

Starfsemin í vetur hefur verið öflug og hafa íþróttastjóri og þjálfarar unnið vel að því að þróa og betrumbæta umgjörð æfinga. Góðum árangri síðasta sumars var fagnað með uppskeruhátíðinni Álfagaldri þar sem iðkendur, foreldrar og þjálfarar komu saman, tóku þátt í skemmtilegum þrautum og nutu samveru á Sveinskotsvelli.

Fram undan er spennandi tímabil og við hlökkum til að fylgjast með ungu kylfingunum okkar ná markmiðum sínum á vellinum.

-Foreldraráð Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis
  • 18/08/2026
    Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
  • 18/08/2026
    Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
  • 17/08/2026
    Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
  • 06/08/2026
    Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00