Stjórnarkjör á aðalfundi Keilis 2026
Stjórnarkjör á aðalfundi Keilis 2026
Aðalfundur Golfklúbbsins Keilis 2026 verður haldinn þriðjudaginn 8. desember í Golfskála Keilis. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 19:30.
Stjórnarkjör samkvæmt 8. grein laga Keilis
Formann stjórnar skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára, þrír hvert ár. Framboð til stjórnar skulu berast skrifstofu Keilis eigi síðar en viku fyrir aðalfund, eða í síðasta lagi 1. desember.
Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnarsetu.
Eftirfarandi bjóða sig fram til áframhaldandi setu
![]() Guðmundur Örn Óskarsson býður sig fram til formanns |
![]() Bjarni Þór Gunnlaugsson býður sig fram í stjórn |
![]() Guðríður Hjördís Baldursdóttir býður sig fram í stjórn |
![]() Sveinn Sigurbergsson býður sig fram í stjórn |
Ólafur Ingi Tómasson, Már Sveinbjörnsson og Lilja Guðríður Karlsdóttir eiga eitt ár eftir af kjörtímabili sínu og sitja því áfram í stjórn Keilis 2027.
Fundarboð með dagskrá og tillögum til lagabreytinga má nálgast hér.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta á fundinn.
Stjórn Golfklúbbsins Keilis





