Rástímaskráningar hefjast
Rástímaskráningar hefjast
Kæru félagsmenn,
Vakin er athygli á því að formleg opnun golfvalla Keilis fer fram sunnudaginn 18. maí næstkomandi.
Rástímabókanir verða opnaðar í dag, föstudaginn 8. maí kl. 15:00. Frá þeim tíma geta félagsmenn bókað rástíma. Engar breytingar hafa verið gerðar á rástímabókunarkerfinu, nema hvað varðar reglur um afbókanir rástíma, sem lýst er nánar hér að neðan. Jafnframt er opnað fyrir bókanir yfir allt sumar.
Athygli er sérstaklega vakin á því að samdægursbókanir í GolfBox eru heimilar og hafa ekki áhrif á fjöldatakmörkun bókaðra rástíma. Félagsmenn geta því, eftir miðnætti (kl. 00:00) sama dag, bókað rástíma án þess að viðkomandi bókun teljist með í hámarksfjölda virkra bókana. Sem dæmi má nefna að félagsmaður sem þegar hefur fjóra rástíma bókaða í kerfinu getur engu að síður bókað sér samdægurshring.
Staðfesting rástíma
Mikilvægt er að félagsmenn staðfesti rástíma sinn áður en farið er út á völl.
Staðfesting fer fram annað hvort í golfskálanum á skjá eða í golfappinu.
Sé rástími ekki staðfestur telst það þannig að viðkomandi kylfingur hafi ekki mætt í tímann sinn, og geta viðurlög samkvæmt reglum félagsins átt við.
Afbókanir rástíma
Ítrekað er að félagsmenn skulu afbóka rástíma með minnst tveggja klukkustunda fyrirvara, eins og undanfarin ár. Sé rástími ekki afbókaður innan tilskilins tíma verður handhafa rástíma gert að greiða sekt að fjárhæð 1.000 krónur sem mun birtast í netbanka viðkomandi samdægurs.
Vonast er til að þetta fyrirkomulag stuðli að betri nýtingu vallarins, jafnframt því að auðvelda félagsmönnum að nýta lausa rástíma með skömmum fyrirvara.
Virðingarfyllst,
Golfklúbburinn Keilir
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00

