12/05/2026

Hreinsunardagurinn 2026

Hreinsunardagurinn 2026

Hreinsunardagurinn og kynning á nýja golfskálanum verður haldinn á fimmtudaginn, uppstigningardag 14. Maí.

Áætlað er að byrja Hreinsunardaginn klukkan 09:00 og vinna til 13:00 n.k fimmtudag, að loknu hreinsunarstarfi verður boðið uppá súpu í golfskálanum og Ólafur Þór Ágústsson mun kynna nýja golfskála verkefnið og nýjungar á golfvellinum.

Þeir sem taka þátt í Hreinsunardeginum vinna sér inn þáttökurétt í Hreinsunarmótinu sem haldið verður sunnudaginn 17. Maí.

Skráning fer fram með að fylla út þetta form

Við skráningu velja þáttakendur sér verkefni til að sinna á Hreinsunardeginum.

Í ár ætlum við að leggja áherslu á nokkur verkefni og þurfum við öflugan hóp með okkur í þau.

Þetta eru:

  • Reita lúpínu við 10. Flöt, og fleiri stöðum ef nógu margir skrá sig.
  • Fylla í kylfuför bæði á völlunum og æfingasvæði
  • Við þurfum svo handlagna einstaklinga til að hjálpa okkur við að setja saman bekki fyrir vellina, setja upp skilti og festa niður borð í básum. Ef einhver er vanur borvél þá eru þetta kjörin verkefni fyrir þig
  • Einnig vantar okkur öfluga aðila að dúka svæðið á milli 15 og 18 brautar undir sáningu.

Þeir sem kjósa að tína rusl skipta með sér 3 brautum og fara út með plastpoka og tínur að vopni. Við biðlum til þeirra sem sinna sorptínslu að flokka sorpið í viðeigandi gáma sem staðsettir eru við áhaldahús Keilis.

Þeir sem ekki komast á fimmtudaginn geta unnið afmörkuð verk þangað til, sérstaklega við að hreinsa rusl á þeim tíma sem hentar fólki í aðdraganda dagsins. Hægt er að hafa samband við skrifstofu til að vinna verkin í eigin tíma.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026
  • 15/06/2026
    Úrslit úr Opna Kristals mótinu
  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu