25/05/2026

Fyrsta mótinu lokið hjá unglingunum

Fyrsta mótinu lokið hjá unglingunum

Fyrsta mótið á Unglingamótaröð GSÍ var spilað á Þorláksvelli um helgina. Í mótinu voru 80 þáttakendur sem spiluðu í alskonar veðuraðstæðum yfir 3 daga.

Á Unglingaröðinni er spilað 3 hringi með niðurskurð eftir tvo hringi þar sem einungis 70% keppenda komast áfram. Þá er keppt í flokkum 15-16 og 17-18 stúlkna og drengja.

Í stúlknaflokki 15-16 ára spilaði Elva María Jónsdóttir best úr Keili en hún endaði í öðru sæti höggi aðeins höggi á eftir fyrsta sæti. Í strákaflokkinum 15-16 ára voru Máni Freyr Vigfússon og Halldór Jóhannsson báðir í toppbaráttunni allt mótið og enduðu jafnir í öðru sæti, einnig höggi á eftir fyrsta sæti.

Í flokkum 17-18 ára spilaði Tinna Alexía Harðardóttir best stúlknanna en Tinna endaði í sjötta sæti, 6 höggum frá sæti á verðlaunapalli. Í drengjaflokki 17-18 ára spilaði Óliver Elí Björnsson best en hann endaði í öðru sæti eftir að hafa verið í ellefta sæti eftir fyrsta hringinn.

Lág skor voru í mótinu en 3 af 4 flokkunum unnust undir pari. Máni og Halldór enduðu samtals 9 undir pari í mótinu, Óliver tókst að spila tvo hringi 7 undir par, Tinna spilaði fyrsta hring mótsins 1 undir pari og Sigurást Júlía spilaði seinni 9 holurnar á öðrum hringnum heila 6 undir pari.

Þá var Golfklúbburinn Keilir með flesta þáttakendur í mótinu (20), flesta kylfinga sem komust í gegnum niðurskurð (14) og flesta kylfinga á verðlaunapalli (5). Hægt er að sjá niðurstöður og skor úr mótinu hér: GolfBox Tournament

Við getum svo sannarlega verið stolt af þessum duglegu og flottu krökkum!

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 19/05/2025
    Guðrún, Þeir Bestu og Unglingarnir
  • 26/02/2025
    Óliver flottur á Tommy Fleetwood International: Bætingar á hverjum degi
  • 13/09/2024
    Keppnistímabilinu 2024 lokið
  • 05/09/2024
    Skúli sigraði á Sauðárkróki
  • 26/08/2024
    Þrír Íslandsmeistaratitlar í golfi til Keilis í dag
  • 19/08/2024
    Óliver Elí með Íslandsmeistaratitil í flokki 15-16 ára