Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Golfklúbburinn Keilir hélt á dögunum móttöku til heiðurs kylfingnum Óliver Elí, sem vakti athygli fyrir frábæran sigur sinn á hinu virta British Boys Amateur Championship.
Um hundrað manns mættu í móttökuna til að samgleðjast Óliver og fjölskyldu hans. Meðal gesta voru forseti GSÍ, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður ÍBH, sem allir fluttu ávörp og óskuðu Óliver til hamingju með árangurinn.
Í ávörpunum var sérstaklega minnst á þann dugnað, metnað og þá fyrirmynd sem Óliver hefur sýnt bæði innan vallar og utan. Fulltrúar Keilis sögðu árangur hans vera félaginu mikinn heiður og mikilvægan innblástur fyrir unga kylfinga.
Móttakan fór fram í golfskála Keilis þar sem gestir fögnuðu einum efnilegasta kylfingi landsins og óskuðu honum velfarnaðar í komandi verkefnum.




