Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu
Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu
Fyrsta GOLF 14 mótið fór fram um helgina á Nesklúbbnum Seltjarnarnesi. Þar kepptu 18 Keiliskrakkar sem allir stóðu sig með stakri prýði.
Keppt var í flokkum 13-14 ára drengja og stúlkna, 11-12 ára drengja og stúlkna og 10 ára og yngri drengja og stúlkna.
Í flokki 13-14 ára spilaði Jón Ómar Sveinsson best af drengjunum með því að enda í 13. sæti og Sólveig Arnarsdóttir best stúlkna en hún náði þriðja sætinu, til hamingju Sólveig.
Í flokki 11-12 ára var Sindri Freyr Eyþórsson með besta skor drengja í sjöunda sæti og Þórunn Emma McGinley var sjötta í stúlknaflokki, Þórunn fór holu í höggi á fyrri hringnum.
Í flokkum 10 ára og yngri var Keilir með einn keppanda, Hrólfur Bragi Sveinsson sem endaði í áttunda sæti.
Næsta mót hjá þessum krökkum er næstu helgi þegar Icewear mótið verður spilað í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

