04/08/2026

Opna Icewear Texas Scramble mótið – Úrslit

Opna Icewear Texas Scramble mótið – Úrslit

Opna Icewear Texas Scramble mótið fór fram á Hvaleyrarvelli laugardaginn 1. Ágúst.

Alls voru 152 þáttakendur með í mótinu og léku Hvaleyrarvöll í blíðskaparveðri.

Skorið var ansi gott hjá liðunum og mátti litlu muna á efstu sætunum, þó skáru þeir Pétur Geir Grétarsson og Vigfús Adolfsson sig frá hópnum og enduðu á að vinna mótið með þremur höggum.

Öll úrslit urðu eftirfarandi:

1.sæti – Pétur Geir Grétarsson og Vigfús Adolfsson – 55 högg
2.sæti – Kolbrún Ólafsdóttir og Hilmar Halldórsson – 58 högg
3.sæti – Helena Rut Steinsdóttir og Íris Dögg Steinsdóttir – 59 högg
4.sæti – Pétur Vilbergur Georgsson og Eva Jódís Pétursdóttir – 61 högg (seinni 9)
5.sæti – Jóhannes Steinar Kristjánsson og Arnar Flókason – 61 högg (seinni 9)
6.sæti – Gísli Vagn Jónsson og Bryndís Garðarsdóttir – 61 högg
7.sæti – Hrafn Hrafnsson og Aðalsteinn Ingi Halldórsson – 62 högg (seinni 9)

Nándarverðlaun

4.hola – Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 1.29m
6.hola – Guðjón Frans Halldórsson – 1,82m
12.hola – Pétur Geir Grétarsson – 0,88m
17.hola – Birkir Thor Kristinsson – 2,16m

Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt fyrir frábæran dag og þökkum Icewear sömuleiðis fyrir samstarfið.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
  • 11/09/2026
    Haustfyrirkomulag rástímabókana
  • 10/09/2026
    Haustferð Keiliskvenna
  • 07/09/2026
    Úrslit úr Fyrirtækjakeppni Keilis 2026
  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis