10/09/2026

Haustferð Keiliskvenna

Haustferð Keiliskvenna

Hin árlega haustferð Keiliskvenna var farin síðastliðna helgi og að þessu sinni sem oft áður lá leiðin á Hótel Hamar í Borgarnesi, þar sem Keiliskonur dvöldu saman og spiluðu Hamarsvöll.

Alls mættu 95 konur til leiks og var mikil þátttaka og stemning í ferðinni. Haustferðin er árlegur viðburður hjá Keiliskonum og hefur skapað sér fastan sess í dagskrá kvennanefndar. Ferðin sameinar golf, keppni og góða samveru og að þessu sinni var einnig keppt í nýjum liðslitum. Liðin voru Team Burgundy og Team Olive og var hart barist um sigurinn.

Mótið var bæði punktakeppni einstaklinga og liðakeppni, þar sem samanlagt skor liðanna réð úrslitum.

Liðakeppnin

Keppnin var spennandi og hart barist í öllum hollum. Að lokum stóð Team Burgundy uppi sem sigurvegari.

Innilegar hamingjuóskir til vínrauða liðsins.

Niðurstöður punktakeppninnar

A-flokkur – +8–23,9

1. sæti: Rósa Ólafsdóttir – 35 punktar (betri seinni 9)
2. sæti: Hildur Íris Helgadóttir – 35 punktar
3. sæti: Erna Snævar Ómarsdóttir – 34 punktar (betri seinni 9)

B-flokkur – 24–36

1. sæti: Guðrún Benediktsdóttir – 38 punktar
2. sæti: Sigurlaug Jóhannsdóttir – 36 punktar (betri seinni 9)
3. sæti: Fríða Rut Baldursdóttir – 36 punktar (betri seinni 6)

Keilisskvísan að þessu sinni er Guðrún Benediktsdóttir.

Nándarverðlaun

Nándarverðlaun voru veitt á öllum par 3 holum Hamarsvallar:

1. hola: Edda Jónasdóttir – 1,11 m
2. hola: Bergþóra Pálína Björnsdóttir – 5,94 m
3. hola: Svanhildur Karlsdóttir – 1,70 m
4. hola: Karólína Helga Símonardóttir – 23 cm
5. hola: Áslaug Hreiðarsdóttir – 2,19 m

Lengsta teighöggið átti Heiðrún Jóhannsdóttir.

Við óskum sigurvegurunum ásamt öllum keppendum innilega til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir frábæra þátttöku í hinni árlegu Haustferð Keiliskvenna.

Það var vel mætt til leiks, bæði í vínrauðu og ólífugrænu og veðurguðirnir héldu áfram að leika við Keiliskonur um helgina.

Við minnum jafnframt á lokahóf miðvikudagsmótaraðarinnar fimmtudaginn 24. september, nánar auglýst síðar.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili