04/06/2017

Vikar sigraði á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni

Vikar sigraði á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni

Vikar Jónassson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir GR sigruðu á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Hamarsvelli í Borgarnesi. Þetta er fyrsti sigur hins tvítuga Vikars á mótaröð þeirra bestu en þriðji sigur Ragnhildar.

Mikil spenna var í karlaflokknum þar sem Vikar Jónasson úr GK tryggði sér sinn fyrsta sigur á Eimskipsmótaröðinni með fugli á lokaholunni. Vikar lenti í glompu við 18. flötina í öðru högginu en holan er par 5. Hann sló glæsilegt högg úr glompunni og setti síðan niður um 2 metra pútt fyrir sigrinum en hann lék lokahringinn á 70 högugm eða -1. Hákon Örn Magnússon úr GR var með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn. Hann lék á +2 í dag og var einu höggi á eftir Vikari. Kristján Þór Einarsson úr GM og Fannar Ingi Steingrímsson úr GHG deildu þriðja sætinuá -3 samtals.

1. Vikar Jónasson, GK (68-69-70) 207 högg -6
2. Hákon Örn Magnússon, GR (65-70-73) 208 högg -5
3.-4. Kristján Þór Einarsson, GM (67-76-67) 210 högg -3
3.-4. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (71-71-68) 210 högg -3
5. Henning Darri Þórðarson, GK (71-71-69) 211 högg -2
6. Hlynur Bergsson, GKG (70-72-70) 212 högg -1
7. Heiðar Davíð Bragason, GHD (74-68-71) 213 högg par
8.-10. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (70-73-71) 214 högg +1
8.-10. Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR (74-69-71) 214 högg +1
8.-10. Theodór Emil Karlsson, GM (71-71-72) 214 högg +1

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 01/07/2025
    Rásímaáætlun í Meistaramótinu
  • 26/06/2025
    Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls
  • 24/06/2025
    Meistaramót Keilis 2025 – skráning hefst 25. júní
  • 24/06/2025
    Nýjar staðarreglur taka í gildi
  • 12/06/2025
    Jónsmessan 2025
  • 04/06/2025
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar