19/09/2025

Bændaglíman 2025 – Skráning hefst í dag

Bændaglíman 2025 – Skráning hefst í dag

Þá líður að Bændaglímunni 2025.

Mótið hefur fest sig í sessi sem ákveðið slútt í mótahaldi og því tilvalið að taka þátt og hafa gaman.

  • Keppnisfyrirkomulag: 2 manna Texas Scramble
  • Bændurnir þetta árið eru þau Heiðar Bergmann Heiðarsson og Sigrún Einarsdóttir
  • Ræst verður út af öllum teigum klukkan 14:00

Að móti loknu verða bornar fram veitingar að hætti Hrefnu og að honum loknum er verðlaunaafhending.
Allir keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og skrá sig tímanlega. Félagsmenn hafa forgang í mótið, ef ekki tekst að fylla í mótið er gestum félagsmanna velkomið að taka þátt.

  • Þáttökugjaldið er 8.000 kr á manninn
  • 20 ára aldurstakmark er í mótið
  • Hámarksfjöldi er 100 keppendur
  • Forgjöf liðs er samanlögð leikforgjöf leikmanna deilt með 3. Forgjöf liðs er þó aldrei hærri en leikforgjöf forgjafarlægri leikmannsins
  • Skráning hefst föstudaginn 19. september klukkan 14:00 og fer fram á Golfbox. Smellið hér til að opna mótið á Golfbox

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
  • 11/09/2026
    Haustfyrirkomulag rástímabókana
  • 10/09/2026
    Haustferð Keiliskvenna
  • 07/09/2026
    Úrslit úr Fyrirtækjakeppni Keilis 2026
  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis