Daníel Ísak braut ísinn á Mótaröð Þeirra Bestu
Daníel Ísak braut ísinn á Mótaröð Þeirra Bestu
Lexus mótið fór fram á Leirdalsvelli GKG dagana 23-25 júlí en mótið er hluti af GSÍ Mótaröð Þeirra Bestu.
Daníel var nálægt foryst allt mótið en á lokadeginum hrifsaði hann til sín forystuna og ríghélt henni þangað til hann sigraði mótið með 3 höggum. Daníel spilaði frábært golf í mótinu á 10 höggum undir pari en tveir ernir á síðustu 5 holunum tryggðu honum sigurinn.
Þetta er fyrst sigur Daníels á Mótaröð Þeirra Bestu sem hefur verið lengi á leiðinni en búast má við því að fleiri séu í vændum frá þessum kraftmikla og hæfileikaríka kylfing nú þegar ísinn hefur verið brotinn.
Í kvennaflokki var klúbbmeistarinn okkar Guðrún Birna Snæþórsdóttir í þriðja sæti í mótinu eftir stöðuga spilamennsku alla þrjá dagana. Þetta er fyrsta skipti Guðrúnar á verðlaunapalli á GSÍ mótaröðinni.
Keiliskylfingar á GSÍ Mótaröð Þeirra Bestu hafa svo sannarlega sótt í sig veðrið þegar líður á sumarið en Keilir hefur átt sigurvegara í síðustu 3 mótunum í karlaflokki og 2 af síðustu 3 í kvennaflokki og þriðja sæti í þessu.
Til hamingju Daníel Ísak, Guðrún Birna og Golfklúbburinn Keilir. Næsta mót á mótaröðinni er Íslandsmótið í Höggleik á Korpúlfstaðarvelli dagana 6-9 ágúst en það má vænta miklu af kylfingum Keilis í því móti.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Óliver Elí komst í gegn á Boys Amateur Championship
Keilir í öðru sæti í Íslandsmóti 65 ára og eldri kvenna
Sveitir Keilis í Íslandsmóti Golfklúbba 2026
Keiliskrakkar skemmtu sér vel á Gulla Arnar Mótinu
Þórdís varði titilinn á Íslandsmóti 50 plús
European Young Masters: 3 af 4 keppendum Íslands úr Keili

