25/11/2026

Aðalfundur Keilis 2026 – lagabreytingar tillögur

Aðalfundur Keilis 2026 – lagabreytingar tillögur

Aðalfundur Golfklúbbsins Keilis verður haldinn þriðjudaginn 8. desember kl. 19:30 í Golfskála Keilis.

Á fundinum leggur stjórn fram tillögur til breytinga á lögum félagsins. Breytingarnar miða að því að Keilir geti fengið skráningu á almannaheillaskrá Skattsins. Þá geta einstaklingar og fyrirtæki dregið gjafir og styrki til klúbbsins frá skatti. Það styrkir barna- og unglingastarf og uppbyggingu aðstöðu. Lögin eru einnig færð í samræmi við kröfur ÍSÍ.

Félagaform Keilis breytist ekki. Árgjöld og önnur félagsgjöld verða áfram ekki frádráttarbær frá skatti.

Fundarboð með dagskrá og tillögum til lagabreytinga má nálgast með að smella hér:

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér tillögurnar og mæta á fundinn.

Stjórn Golfklúbbsins Keilis

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 25/11/2026
    Stjórnarkjör á aðalfundi Keilis 2026
  • 24/11/2026
    Skötuveisla Keilis 2026
  • 11/11/2026
    Aðalfundur Keilis 2026
  • 10/11/2026
    Lokun Hvaleyrarvallar
  • 02/11/2026
    Æfingar barna- og unglingastarfsins að hefjast í Hraunkoti
  • 30/10/2026
    Hvaleyrarvöllur opnar aftur fyrir félagsmenn Keilis