06/12/2024

Elva María hlýtur Framfarabikar kvenna

Elva María hlýtur Framfarabikar kvenna

Elva María Jónsdóttir hlýtur framfararbikar kvenna. Elva byrjaði árið með 10,8 í forgjöf og hefur náð að lækka sig í 4,9.​

Elva spilaði stöðugt og gott golf yfir sumarið á mótaröð 14 ára og yngri og lenti í efstu fjórum sætunum á öllum mótum sumarsins.​

Fáir áttu séns í Elvu þegar hún spilaði sitt besta golf en hún sigraði Nettó mótið á GOLF14 mótaröðinni með 20 höggum yfir tvo daga og Meistaramót Keilis í flokkum 13-15 ára með 30 höggum yfir 3 daga.​

Elva er frábær leiðtogi í sínum aldursflokki en hún var hluti af stelpna sveit Keilis 14 ára og yngri þegar þær urðu Íslandsmeistarar á Íslandsmóti Golfklúbba í sumar.​

Elva hefur verið valinn í landsliðsæfingahóp GSÍ fyrir veturinn og verður gaman að fylgjast með honum næsta sumar.​

Til hamingju Elva!

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 01/07/2025
    Rásímaáætlun í Meistaramótinu
  • 26/06/2025
    Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls
  • 24/06/2025
    Meistaramót Keilis 2025 – skráning hefst 25. júní
  • 24/06/2025
    Nýjar staðarreglur taka í gildi
  • 12/06/2025
    Jónsmessan 2025
  • 04/06/2025
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar