26/07/2026

European Young Masters: 3 af 4 keppendum Íslands úr Keili

European Young Masters: 3 af 4 keppendum Íslands úr Keili

European Young Masters var spilað dagana 23-25 ágúst en mótið er eitt sterkasta Unglingamót í Evrópu hvert ár. Evrópuþjóðir velja tvo drengi og tvær stúlkur til að spila í mótinu en Máni Freyr Vigfússon og Halldór Jónsson voru valdir fyrir Íslands hönd og Elva María Jónsdóttir stúlknamegin.

Mótið fór fram á El Saler vellinum í Valenciu á Spáni. Drengirnir náðu ekki að koma sér á strik í mótinu en Máni var jafn í 54. sæti og Halldór jafn í 41. sæti hjá drengjunum.

Elva María Jónsdóttir átti gott mót og endaði jöfn í 10 sæti af stúlkunum en hún spilaði annan og þriðja hringinn á 73 höggum en lægsti hringur stúlkna í mótinu var 69 högg.

Máni, Halldór og Elva hafa öll staðið sig vel á mótaröðum Íslands síðustu misseri og munu taka með sér fullt af reynslu og lærdómi frá þessu móti til að halda áfram sínum framförum.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 12/08/2026
    Óliver Elí komst í gegn á Boys Amateur Championship
  • 11/08/2026
    Keilir í öðru sæti í Íslandsmóti 65 ára og eldri kvenna
  • 10/08/2026
    Sveitir Keilis í Íslandsmóti Golfklúbba 2026
  • 05/08/2026
    Keiliskrakkar skemmtu sér vel á Gulla Arnar Mótinu
  • 26/07/2026
    Þórdís varði titilinn á Íslandsmóti 50 plús
  • 26/07/2026
    Daníel Ísak braut ísinn á Mótaröð Þeirra Bestu