30/09/2024

Flott spá fyrir Bændaglímuna

Flott spá fyrir Bændaglímuna

Hin árlega Bændaglíma fer fram laugardaginn 5. október

Mótið hefur fest sig í sessi sem ákveðið slútt í mótahaldi og því tilvalið að taka þátt og hafa gaman.

Spáin er flott fyrir daginn og vonum við að sjá sem allra flesta

  • Keppnisfyrirkomulag: 2 manna Texas Scramble
  • Bændurnir þetta árið verða þeir Hlynur Halldórsson og Sigurgeir Hlíðar Sigurjónsson
  • Ræst verður út af öllum teigum klukkan 14:00
  • Boðið verður upp á Irish Coffee í ræsisskúrnum og veitingavagninn verður á ferðinni

Að móti loknu verða bornar fram veitingar að hætti Hrefnu og að honum loknum er verðlaunaafhending.
Íslenski Elvis mætir á svæðið og heldur uppi stuðinu um kvöldið. Allir keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og skrá sig tímanlega

  • Þáttökugjaldið er 7.000kr á manninn
  • 20 ára aldurstakmark er í mótið
  • Forgjöf liðs er samanlögð leikforgjöf leikmanna deilt með 3. Forgjöf liðs er þó aldrei hærri en leikforgjöf forgjafarlægri leikmannsins
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 01/07/2025
    Rásímaáætlun í Meistaramótinu
  • 26/06/2025
    Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls
  • 24/06/2025
    Meistaramót Keilis 2025 – skráning hefst 25. júní
  • 24/06/2025
    Nýjar staðarreglur taka í gildi
  • 12/06/2025
    Jónsmessan 2025
  • 04/06/2025
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar