02/12/2013

Frá ritaranum

Frá ritaranum

Senn líður að aðalfundi og sem stjórnarmaður í GK til fjölda ára hef ég ákveðið að láta gott heita. Þykir sjálfsagt mörgum nóg komið.

Þessi tími hefur verið mjög lærdómsríkur og gríðarlega skemmtilegur og stjórnin ávallt samstíga í því að gera það sem best er fyrir okkar góða klúbb.

Þar hefur íþróttastarfið verið í öndvegi og eigum við nú afburða keppnisfólk sem skarar fram úr hvar sem það keppir og á aðstaðan í Hraunkoti, auk frábærra kennara mestan  þátt í því.

Hvaleyrarvöllur er umtalaður fyrir góða umhirðu og almenna snyrtimennsku og hafa vallarstarfsmenn unnið frábært starf undir forystu mjög svo hæfra vallarstjóra.

Sem formaður mótanefndar undanfarin ár vil ég þakka starfsmönnum í verslun, í veitingasölu, á skrifstofu og síðan en ekki síst í ræsingu fyrir þeirra hlut í að gera mótin  á Hvaleyrinni einkar ánægjulega upplifun fyrir keppendur.

Arnar B. Atlason hefur ákveðið að gefa kost á sér sem formaður GK og vil ég lýsa mínum stuðningi við hann og það góða fólk sem hann vill hafa með sér í þeirri baráttu sem framundan er.

Áfram Keilir

Guðmundur Haraldsson

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 01/05/2026
    Áskoranir vetursins – Í tilefni dags verkalýðsins
  • 23/04/2026
    Staðan á völlunum
  • 23/04/2026
    Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir
  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay