Fréttir af starfshópi um nýjan golfvöll
Fréttir af starfshópi um nýjan golfvöll
Við í framkvæmdahópi um nýjan golfvöll í Snókalöndum, þar sem ég sit fyrir hönd Keilis, höfum undanfarið unnið að frumþarfagreiningu á uppbyggingu svæðisins. Það er mér ánægja að geta nú deilt helstu niðurstöðum með ykkur.
Greiningin sýnir að við höfum í höndunum raunhæfa og metnaðarfulla sýn á framtíðaraðstöðu fyrir golfíþróttina. Gert er ráð fyrir uppbyggingu þriggja valla – tveggja 18 holu valla og eins 12 holu vallar – ásamt öflugu æfingasvæði, innanhúsaðstöðu og öðrum nauðsynlegum innviðum. Heildarsvæðið er áætlað um 265 hektarar, þar sem um helmingur lands, eða um 134,5 hektarar, verður slegið gras og nýtt til golfleiks. Jafnframt er horft til framtíðar með verkefni sem hægt verður að áfangaskipta, þar sem heildarsýn liggur fyrir strax á hönnunarstigi.
Mikil áhersla hefur verið lögð á skynsamlega landnýtingu og jafnvægi milli gæða golfvalla og sjálfbærni. Áætlað er að á háannatíma geti allt að 370 einstaklingar verið á svæðinu samtímis og að um 1.350 kylfingar fari í gegnum vellina á hefðbundnum degi. Þetta endurspeglar þann vöxt og þá framtíðarsýn sem unnið er eftir.
Sérstök áhersla er einnig lögð á fjölbreytta nýtingu svæðisins. Markmiðið er að golfið verði hluti af stærra útivistarsvæði þar sem almenningur getur notið hreyfingar og náttúru á margvíslegan hátt. Gert er ráð fyrir göngu- og skokkleiðum, hjólreiðastígum og annarri útivist sem fellur vel að landslagi svæðisins og gerir svæðið aðgengilegt fyrir fjölbreyttan hóp notenda allt árið um kring.
Það er jafnframt mikilvægt að fram komi að nýr meirihluti í Hafnarfirði hefur sett verkefnið inn í málefnasamning sinn. Það er afar jákvætt og skiptir miklu máli fyrir framgang verkefnisins, þar sem það veitir því aukinn stöðugleika og festu í áframhaldandi undirbúningi.
Næstu skref eru að fá til liðs við verkefnið reyndan golfvallararkitekt sem mun leiða áfram hönnunarvinnuna. Jafnframt er verið að skoða möguleika á hönnunarsamkeppni til að tryggja sem besta niðurstöðu fyrir framtíð golfs í Hafnarfirði.
Þetta er stórt og mikilvægt skref fyrir golfið á svæðinu og ég er sannfærður um að verkefnið mun styrkja stöðu íþróttarinnar enn frekar og skapa framúrskarandi og fjölbreytta útivistaraðstöðu til framtíðar.
Með bestu kveðju,
Ólafur Þór Ágústsson
framkvæmdastjóri Keilis

