Hvaleyrarbikarinn í golfi hefst á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði á morgun föstudag og stendur fram á sunnudag. Mótið er fimmta stigamótið á GSÍ-mótaröðinni í sumar og er venju samkvæmt leiknar 54 holur á þremur dögum eða þrír hringir.
Þar er mikið af upplýsingum í boði fyrir þá sem vilja fylgjast með meðan á mótinu stendur eða vilja kynna sér að mótinu loknu hvernig kylfingunum gekk. Ýmsar tölur og staðreyndir er að finna á síðunni hvort sem það tengist skorinu, vellinu eða veðrinu.
Guðrún Brá mætir til leiks
Forvitnilegt verður því að sjá hvernig kylfingunum gengur að eiga við völlinn en Hvaleyrarvöllur er nokkuð erfiðari en áður eftir þær breytingar sem gerðar voru á síðari níu holunum. Þær eru nú allar með fram sjónum og links yfirbragðið er áberandi líkt og þekkist á völlunum sem halda The Open.
Atvinnukylfingurinn og núverandi Íslandsmeistari Guðrún Brá Björgvinsdóttir verður á meðal keppenda en hún þekkir Hvaleyrarvöll eins og lófann á sér enda keppt fyrir Keili alla tíð. Guðrún Brá er því fyrirfram sigurstrangleg og sigraði á mótinu árið 2020. Íslandsmeistarinn 2022, Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR, er einnig líkleg til afreka og hana vantar Hvaleyrarbikarinn í safnið.
Til gamans má geta að þessar afrekskonur eru komnar langt niður fyrir 0 í forgjöf en Guðrún Brá er skráð með +3,7 í forgjöf og Perla Sól + 2,9 í forgöf.
Er Aron Snær ósigrandi í sumar?
Í karlaflokki eru margfaldir Íslandsmeistarar skráðir til leiks eins og Axel Bóasson úr Keili og Kristján Þór Einarsson úr GM en Axel hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari og Kristján tvívegis. Báðir hafa þeir unnið Hvaleyrarbikarinn. GR-ingurinn Jóhannes Guðmundsson á bikar að verja í mótinu eftir að hafa haft betur gegn Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR í bráðabana fyrir ári síðan. Báðir eru þeir skráðir til leiks en Guðmundur Ágúst er einn þeirra Íslendinga sem náð hafa að leika á móti á Evrópumótaröðinni og varð Íslandsmeistari 2019 sem kunnugt er.
En ef til vill mætti segja að tvöfaldur Íslandsmeistari, Aron Snær Júlíusson úr GKG, sé sigurstranglegastur því hann hefur verið í fantaformi í sumar og vann fyrstu þrjú stigamótin og gæti því bætt fjórða sigrinum við þótt rétt sé komið fram í miðjan júlí. Hann hefur ekki sigrað í Hvaleyrarbikarnum.
Hvaleyrarvöllur er krefjandi keppnisvöllur fyrir bestu kylfinga landsins eins og sást á skorinu í mótinu í fyrra. Jóhannes og Guðmundur Ágúst léku samtals á parinu og sigurvegarinn í kvennaflokki Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS var á samtals þremur yfir pari. Heiðrún Anna er ekki með að þessu sinni.
Bikar með sögu
Mótið á sér nokkuð langa sögu því áður var það opið mót en var endurvakið árið 2017 og er nú eitt af stigamótunum. Verðlaunagripurinn í karlaflokki sér nokkra sögu og óvenjulega sögu eins og fram hefur komið. Er hann einn af elstu bikurunum í safninu hjá golfklúbbnum Keili og væntanlega einn sá elsti sem enn er afhentur sigurvegurum í golfmótum hérlendis.
Var bikarinn gefinn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eftir að klúbburinn var stofnaður. Var keppt um bikarinn á opnu móti hjá Keili sem var haldið var í nokkur ár.
Bikarinn er veglegur og fremur óvenjulegur í útliti. Var hann hannaður og sérsmíðaður í listagallerí í Japan á sínum tíma. Þegar stigamótinu Hvaleyrarbikarnum var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað eintak enda keppt í tveimur flokkum í Hvaleyrarbikarnum. Var bikarinn sendur til Kína með það fyrir augum að búa til eftirlíkingu en Kínverjarnir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólminn var komið.
Höfðu Keilismenn þá upp á listagalleríinu í Japan og var þar smíðaður annar bikar sem gefinn var af Icewear. Þá þurfti raunar einnig að gera lítillega við bikarinn sem hafði skemmst á heimleiðinni frá Kína. Bikarinn hefur því farið nokkrar ferðir á milli Íslands og Asíu.