Ágæti félagi,  

Á  aðalfundi Golfklúbbsins Keilis sem haldinn var þiðjudaginn 15. desember sl. var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.

Á fundinum var Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir endurkjörinn formaður klúbbsins. Með henni í stjórn eru Sveinn Sigurbergsson, Guðmundur Örn Óskarsson, Ellý Erlingsdóttir, Bjarni Þór Gunnlaugsson, Daði Janusson og Már Sveinbjörnsson.

Innheimta félagsgjalda fyrir árið 2021 verður eftirfarandi.  Sendir verða út fjórir greiðsluseðlar til þeirra sem kjósa þann greiðslumáta. Athugið að greiðsluseðlana verður aðeins hægt að greiða í heimabanka.

Þeir félagar sem greiða með greiðslukorti, VISA eða EURO geta dreift greiðslum í allt að 10 jafna hluta frá og með 13.desember og er 3% þóknun af þeim viðskiptum. Þeir sem skiptu um greiðslukort frá síðasta greiðslutímabili eru vinsamlega beðnir um að  koma upplýsingum um breytingar á skrifstofu Keilis.

Þeir sem ekki  greiða með korti munu fá senda fjóra greiðsluseðla í heimabanka með eindaga 1. febrúar,1. mars, 1. Apríl og 1. maí, gjald fyrir greiðsluseðil er kr. 350,00.

Athugið að til þess að losna við greiðsluseðlagjaldið þarf að gera það í heimabanka viðkomandi með því að fara í flipann aftan við kröfuna og velja um að setja kröfuna í beingreiðslu.

Henti greiðslufyrirkomulag okkar ekki, bendum viðkomandi á að semja við þjónustufulltrúa sinn um aðra greiðsludreifingu. Í þeim tilfellum greiðir viðskiptabankinn félagsgjaldið til okkar í eingreiðslu inn á reikning Keilis í banka 140-26-5581 kennitala 680169-6919.

Hafi félagsmaður ekki greitt gjaldið eða samið um greiðslur fyrir 10. apríl verður krafa send til frekari innheimtu og viðkomandi félagsmaður tekin út af félagaskrá án viðvörunar 1. maí. Eftir 10. apríl verður innborgað félagsgjald ekki endurgreitt.

Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra sem vilja breyta um greiðslufyrirkomulag að gera það strax. Það eina sem þarf að gera til að ganga frá breytingu er að senda tölvupóst á netfangið david@keilir.is

Félagsgjöldin fyrir árið 2021.

Hópur   0 til 18 ára               kr. 30.750         Sveinskots. 0-16 ára                 kr. 0
Hópur   19 til 26 ára             kr. 61.500         Sveinskots. 17-26 ára               kr. 29.000
Hópur   27 til 70 ára            kr. 123.000       Sveinskots. 27-70 ára              kr. 58.000
Hópur   71 til 74 ára             kr. 92.250         Sveinskots. 71 til 74 ára           kr. 43.250
Hópur   75 ára+                    kr. 50.500         Sveinskots. 75 ára+                  kr. 29.000

Skápaleiga fyrir árið 2021 verður kr. 15.500. Leiga fyrir stæði undir hjól og kerrur verður kr. 22.000 fyrir sama tímabil. Innheimta þessara gjalda fer fram samtímis félagsgjöldum.

Allar upplýsingar um aðalfund Keilis eru á heimasíðunni https://2020.keilir.is/

Hvaleyri, desember 2020

Virðingarfyllst, Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis.