30/05/2026

Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman

Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman

Golfklúbburinn Keilir og Kress í gegnum HÁ verslun sem þjónustar og selur Kress vörur á Íslandi hafa gengið til nýs samstarfs til áranna 2026–2028 með það markmið að nýta nútímalegar og sjálfbærar lausnir í golfvallarviðhaldi.

Með samningnum verður Keilir „Kress Ambassador-völlur“ og mun nota sjálfvirkar sláttuvélar og stóra vörulínu Kress s.s blásara, orf og fleiri rafmagnstæki í daglegum rekstri. Samstarfið er stórt skref í átt að enn skilvirkari og umhverfisvænni umhirðu golfvallarins.

Keilir mun jafnframt taka þátt í prófunum og þróun nýrra lausna, auk þess að vera kynningarvöllur fyrir Kress með heimsóknum, viðburðum og sýnikennslum á vörulínu Kress.

„Við erum virkilega spennt fyrir þessu samstarfi og hlökkum til að vinna náið með Kress á næstu árum,“ segir Haukur Jónsson, yfirvallarstjóri Keilis.

„Við erum stolt af því að styðja þetta samstarf ásamt traustum samstarfsaðila okkar, HÁ Verslun,“ segir Juuso Rajasvuo, sölustjóri Kress Golf. „Þetta samstarf endurspeglar sameiginlega skuldbindingu okkar til að þróa sjálfbærar og snjallar lausnir fyrir faglega umhirðu golfvalla. Með því að sameina vélmennatækni og rafhlöðuknúinn búnað erum við að gera viðhald golfvalla skilvirkari og umhverfisvænni. Hlutverk Keilis sem kynningarvallar verður ómetanlegt við að sýna raunverulegan ávinning þessara lausna.“

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 16/07/2026
    Hvaleyrarbikarinn 2026 – metnaðarfull upplýsingasíða
  • 14/07/2026
    Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
  • 14/07/2026
    Takk fyrir frábært Meistaramót
  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026