Fimmtudaginn 19. maí hefjast námskeið í stutta spilinu og teighöggum hjá Golfklúbbnum Keili.

Það er allt orðið fullt á námskeiðin sem hefjast kl. 18 og kl. 19 og viljum við þakka kærlega fyrir það.

Ákveðið hefur verið að hafa námskeið 3 sem hefst kl. 20:00. 

Skráning og nánari upplýsingar eru á netfangið karl.omar.karlsson@grundaskoli.is

 

Markmið með námskeiðinu er að auka kunnáttu sína og auka betur færnina í byrjun hverrar brautar og einnig við og á flötunum.

Hver hópur er klst. í senn í fjögur skipti. Farið er í tækni fyrir lágu vippin, 10 til 50 metra fleyghögg inn á flatir, að slá upp úr glompu við flatir, stuttu, milli og löngu púttin og síðan en ekki síst teighöggin.

Námskeið 1 , 2  og 3 verður dagana 19., 25., 26. og 1. júní kl. 18:00 eða kl. 19:00 og kl. 20:00!

Námskeiðið kostar 9000 kr. og eru æfingakúlur innifaldir.

Einnig fá allir bækling með upprifjun á þeim atriðum sem kennd eru og æfingaáætlun með þeim æfingum sem notaðar eru á námskeiðinu.

Kennarar eru þeir Karl Ómar og Björn Kristinn PGA golfþjálfarar Keilis