Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
Hvaleyrarbikarinn fer fram næstu helgi, dagana 17.–19. júlí.
Golfklúbburinn Keilir leggur mikla áherslu á að umgjörð mótsins sé til fyrirmyndar og að keppendur upplifi faglegt og vel skipulagt mót. Til að það takist þurfum við á aðstoð ykkar að halda.
Við leitum að sjálfboðaliðum til að sinna framvörslu á vellinum á meðan mótinu stendur. Eins og margir upplifðu í nýafstöðnu Meistaramóti er hlutverk framvarða er afar mikilvægt fyrir framgang golfmóta af slíku tagi og skiptir sköpum á mörgum holum Hvaleyrarvallar
Við tökum vel á móti öllum sem hafa tíma og áhuga á að hjálpa, hvort sem er hluta úr degi eða fleiri vaktir yfir mótshelgina.
Ef þú getur lagt okkur lið, vinsamlegast skráðu þig eða hafðu samband sem fyrst. Öll aðstoð er vel þegin og skiptir miklu máli.
Fyrirfram kærar þakkir fyrir stuðninginn og þátttökuna.
Mótanefnd Hvaleyrarbikarsins
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00

