02/10/2026

Skert þjónusta í golfskálanum

Skert þjónusta í golfskálanum

Nú styttist óðum í lok golftímabilsins og með haustinu þurfum við óhjákvæmilega að minnka suma af þeirri þjónustu sem gestir og félagsmenn eru vanir.

Golfverslunin verður áfram opin samhliða skrifstofunni frá kl. 08:00 til 16:00 á virkum dögum og því áfram hægt að nálgast varning og aðra þjónustu á þeim tíma.

Vegna aðstæðna á vellinum getum við því miður ekki heimilað notkun golfbíla að svo stöddu. Eins og staðan er í dag má gera ráð fyrir að það haldist óbreytt út tímabilið.

Veitingasalan verður áfram opin alla virka daga frá kl. 09:00 til 15:00 þar til annað verður auglýst.

Eins og er liggja engin áform fyrir um lokun valla. Við biðjum þó kylfinga um að fylgjast vel með tilkynningum þar sem breytingar geta orðið með skömmum fyrirvara vegna veðurs eða vallaraðstæðna.

Allar tilkynningar um mögulegar lokanir eða breytingar á opnun verða birtar í rástímabókun GolfBox og á Facebook-síðu klúbbsins.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
  • 11/09/2026
    Haustfyrirkomulag rástímabókana
  • 10/09/2026
    Haustferð Keiliskvenna
  • 07/09/2026
    Úrslit úr Fyrirtækjakeppni Keilis 2026