Skötuveisla Keilis 2026
Skötuveisla Keilis 2026
Hin árlega skötuveisla Keilis verður haldin í Golfskála Keilis á Þorláksmessu, miðvikudaginn 23. desember.
Allur ágóði af veislunni rennur til barna- og unglingastarfs Keilis, svo gestir styrkja gott málefni um leið og þeir gæða sér á skötunni.
Eins og undanfarin ár sér Láki í Salthúsinu í Grindavík um herlegheitin. Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur, grjónagrautur og heimagert rúgbrauð. Kaffi er innifalið í verðinu og aðrir drykkir eru seldir á barnum.
🎄 Hagnýtar upplýsingar
📍 Golfskáli Keilis
🕗 Húsið opnar kl. 11:15
Verð: 6.500 kr. á mann
Vinsamlegast bókið með því að senda tölvupóst á vikar@keilir.is með nafni, fjölda gesta og ósk um tíma.
Gleðileg jól!


