14/07/2026

Takk fyrir frábært Meistaramót

Takk fyrir frábært Meistaramót

Takk fyrir frábært Meistaramót Keilis!

Kæru félagar,

Mig langar að nýta tækifærið og senda ykkur öllum mínar bestu kveðjur og þakkir eftir nýliðið Meistaramót hjá okkur í Golfklúbbnum Keili.

Það var einstaklega ánægjulegt að sjá þátttökuna og þann frábæra anda sem einkenndi mótið. Meistaramót kallar fram allar tilfinningarnar sem fylgja íþróttinni og við fengum líka að upplifa allar tegundir veðurs. Það er ljóst að einstök gæði golfvallanna okkar gerðu líka keppnina spennandi með skemmtilegum áskorunum og vil ég þakka sérstaklega starfsfólkinu á Keili fyrir að leggja sig öll fram um að gera upplifun félaga sem besta.

Það er að mörgu að keppa í Meistaramótinu hvort sem það er að eiga sinn besta hring eða sleppa við tveggja stafa skor á holu. Í  ár voru svo nándarverðlaunin tekin með stæl á 17. holu hjá Viktori Tuma Valdimarssyni sem fór holu í höggi. Spennan var líka óviðjafnanleg þegar úrslit í nokkrum flokkum réðust í æsispennandi bráðabana um verðlaunasætin.  Hamingjuóskir til ykkar allra sem stóðuð uppi sem sigurvegarar og klúbbmeistaranna okkar Guðrúnar Birnu Snæþórsdóttur og Axels Bóassonar með þeirra glæsilegu frammistöðu.

Eitt af því allra besta við Meistaramótið er tækifærið til að spila með og kynnast nýju fólki innan klúbbsins. Svo er auðvitað lokahófið skemmtilegur viðburður til að fagna árangri og gleðjast saman sem golffélagar.

Miklar þakkir til allra keppenda, starfsfólks og sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum til að gera Meistaramót Keilis að sannkallaðri golfhátíð. Við getum verið afar stolt af okkar klúbbi og félagsskapnum.

Sjáumst  vonandi sem fyrst á vellinum!

Golfkveðja,
Guðríður Hjördís Baldursdóttir
Varaformaður Keilis

 

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 14/07/2026
    Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026
  • 15/06/2026
    Úrslit úr Opna Kristals mótinu
  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag