03/07/2017

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir

Föstudaginn 14. júlí n.k. klukkan 09:00 hefst nýr kafli í sögu Keilis þegar ný viðbót við Hvaleyrarvöll verður opnuð og breytingar verða gerðar á Sveinskotsvelli.

Framkvæmdatíminn hefur verið með allra stysta móti. Sáð var í 14. brautina fyrir 11 mánuðum síðan og er ótrúlegt að sjá gróskuna í brautinni. Vallarstarfsmenn vinna nú að því að ganga frá síðustu glompunum ásamt því að klára síðustu teigana. Á 13. brautinni verður slegið af aftasta parti 1. teigs á Sveinskotsvelli af gulum, bláum og rauðum teigum til að byrja með. Nýir teigar 13. brautar verða tilbúnir seinna í sumar.

Opnunarhátíðin byrjar klukkan 09:00, föstudaginn 14. júlí, með því að einn ráshópur leikur þessar þrjár holur. Ráshópurinn verður samansettur af fulltrúum okkar bestu kylfinga og frá yngstu kynslóðinni í Keili. Félagsmönnum Keilis er boðið að rölta með og skoða herlegheitin. Fyrsta upphafshöggið á hverri holu fyrir sig verður slegið af boðsgestum og velunnurum Keilis.

Eftir opnunina verður gestum boðið í léttan morgunverð uppí golfskála.

Hér að neðan má sjá teikningu af breytingunum, og verður einnig hægt að skoða stærri útgáfu á töflu við golfverslunina og á borðum í sal golfskálans.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 06/07/2025
    Meistaramótsvikan hafin
  • 01/07/2025
    Rásímaáætlun í Meistaramótinu
  • 26/06/2025
    Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls
  • 24/06/2025
    Meistaramót Keilis 2025 – skráning hefst 25. júní
  • 24/06/2025
    Nýjar staðarreglur taka í gildi
  • 12/06/2025
    Jónsmessan 2025