01/06/2026

Uppfærðar staðarreglur

Uppfærðar staðarreglur

Staðarreglur á Hvaleyrarvelli hafa nú uppfærðar, 1. júní í takt við batnandi ástand vallarins sem er að komast í sitt besta form.  Breytingin er að ekki verður lengur leyft að bæta legu boltans neins staðar á vellinum (mátti áður á snöggslegnu grasi á braut).

Þá er gott að minna á að eins og í fyrra er gras á 18. braut sem slegið er snöggslegið eða neðar, brautin, flötin og svuntan, utan vallar (Out of bounds) þegar 16. brautin er leikin.

Uppfærðar staðarrreglur má finna hér

Þá er einnig rétt að minna á að nú þegar krían er komin, og fer að undirbúa varp sitt og útungun, að heimilt er að halda t.d. kylfu eða regnhlíf yfir kylfingi sem undirbýr og slær högg til að halda kríunum frá.  Fróðleik um þennan merkilega fugl sem deilir með okkur golfvellinum okkar má t.d. finna hér https://is.wikipedia.org/wiki/Kr%C3%ADa

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 16/07/2026
    Hvaleyrarbikarinn 2026 – metnaðarfull upplýsingasíða
  • 14/07/2026
    Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi
  • 14/07/2026
    Takk fyrir frábært Meistaramót
  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026