16/09/2025

Úrslit ráðin í Bikarkeppni Keilis

Úrslit ráðin í Bikarkeppni Keilis

Úrslitaviðureign Bikarkeppni Keils í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar lauk nú á dögunum.

Voru það þeir Örn Rúnar Magnússon og Ingvar Ásbjörn Ingvarsson sem mættust og er ekki annað hægt að segja en að spennan hafi verið mikil.

Ingvar byrjaði hringinn af krafti og var kominn 2 holur upp eftir 3. Eftir það fór Örn að sækja og var leikurinn hnífjafn eftir 9 holur. Á seinni 9 áttu þeir báðir sína spretti en að lokum tókst Erni að knýja fram sigur á 17. holu.

Við óskum bæði Erni og Ingvari til hamingju með árangurinn í þessu stórskemmtilega móti.

Við þökkum Hjarta Hafnarfjarðar fyrir samstarfið og sömuleiðis öllum þeim sem tóku þátt.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 30/05/2026
    Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman
  • 22/05/2026
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar
  • 13/05/2026
    Við minnum á Hreinsunardaginn
  • 13/05/2026
    Keilisferð til Fairplay – Nú er vikuferð í boði
  • 13/05/2026
    Geggjað kvennastarf
  • 12/05/2026
    Algengustu dómaraspurningar á Hvaleyrarvelli